Trúnaðaryfirlýsing

Við tökum persónuvernd og friðhelgi einstaklinga mjög alvarlega. Þessi trúnaðaryfirlýsing útlistar hvernig upplýsingum er safnað við notkun þessarar vefsíðu, hvernig upplýsingarnar eru geymdar og hvernig þær eru nýttar.

Við notum IP-tölur notenda til að greina vandamál á vefþjónum okkar og hafa umsjón með vefsíðum okkar.

Þegar þú notar þennan vef verða til upplýsingar um heimsóknina. Key Habits miðlar þeim ekki til annarra nema samkvæmt lagaskyldu til eftirlitsaðila.

Gagnasöfnun
Persónuupplýsingarnar sem við söfnum eru meðal annars: Nafn, netfang, og símanúmer. Key Habits notar þessar upplýsingar til að bæta þjónustu, vöru og skilaboð. Gögnin sem safnað er eru geymd á vefþjóni Key Habits í að hámarki 1 ár. Notendur geta hvenær sem er óskað eftir því að upplýsingar um þá verði fjarlægðar.


Vafrakökur
Vafrakökur (e. cookies) eru notaðar til að telja heimsóknir á vefinn og til að þekkja aftur fyrri notendur. Key Habits notar vafrakökur sparlega og af ábyrgð. Notendur geta sjálfir stillt vafra sína þannig að þeir láti vita af kökum eða hafni þeim alfarið. Key Habits notar Google Analytics til vefmælinga. Í hvert sinn sem vefurinn er heimsóttur eru nokkur atriði skráð, svo sem tími og dagsetning heimsóknar, leitarorð sem notuð eru til að finna vefinn, frá hvaða vef er komið og gerð bæði vafra og stýrikerfis þess sem heimsækir vefinn. Upplýsingarnar sem safnað er eru notaðar til að þróa og bæta vefinn svo hann verði aðgengilegri og þægilegri í notkun. Engum öðrum upplýsingum um hverja komu er safnað. Upplýsingarnar sem safnað er eru ekki tengdar við aðrar persónugreinanlegar upplýsingar.
SSL skilríki
Vefurinn notast við svokölluð SSL-skilríki. Það þýðir að öll samskipti eru yfir dulritað burðarlag sem gerir gagnaflutning í gegnum hann öruggari. SSL skilríki koma í veg fyrir það að þriðji aðili komist yfir gögn, s.s. lykilorð, sem send eru í gegnum vefinn. Upplýsingar sem sendar eru milli notenda vefmiðlara eru dulkóðaðar með SSL skilríkjunum. Þannig skila gögnin sem flutt eru á milli sér á öruggan og réttan máta.

Skráðir notendur
Ábending eða fyrirspurn
Á síðum vefsins er hægt að skrá ábendingu/senda inn fyrirspurn. Í gegnum þar til gerð form geta notendur gefið upp netfang sitt svo hægt sé að fylgja ábendingunni/fyrirspurningunni eftir. Þessar skráningar eru geymdar í að hámarki 1 ár í vefumsjónarkerfinu. Afrit af erindum eru ekki vistuð í vefumsjónarkerfinu.

Póstlistar og önnur áskrift að efni
Notendur geta skráð sig á póstlista og komið í áskrift að efni frá Key Habits. Efnið er sent á netföng sem skráð hafa verið í áskrift. Netföngin eru vistuð í Webflow og eru einungis vistuð í þeim tilgangi að senda út fréttir og upplýsingar frá Key Habits. Neðst í hverjum pósti sem sendur er út til notenda er tengill sem hægt er að smella á til að segja sig úr áskrift. Vefurinn og þær upplýsingar sem hann tekur á móti eru vistaðar á Íslandi hjá fyrirtæki með alþjóðlega öryggisvottun.

Aðrir vefir
Reglur Key Habits um öryggi notenda gilda ekki á vefjum utan hans. Vefir sem vísað er í af vef Key Habits eru utan ábyrgðar Key Habits.
Hægt er að hafa samband í gegnum keyhabits@keyhabits.is til að gera athugasemdir eða fá frekari upplýsingar.
Skeifunni 19   /   108 Reykjavík   /   keyhabits@keyhabits.is   /   511 4488